Vinnumarkaðurinn og gervigreind: Hvað gerist næst?
CCP - Gróska, Bjargargata 1, 101 Reykjavík Directions
Fri Sep 25 2026 09:00
Verið velkomin á morgunverðarfund Almannaróms og Menningar-nýsköpunar-og háskólaráðuneytisins föstudaginn 25. september nk. frá 9:00-10:30 á Parketinu í Grósku (jarðhæð).Á viðburðinum kemur fram Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford Institute for Human Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab. Erik er heimsþekktur hagfræðingur og hefur verið leiðandi í rannsóknum á áhrifum gervigreindar á vinnumarkað.Að loknu erindi Eriks munu þau Erik og Lilja Dögg, framkvæmdastjóri Almannaróms setjast niður og ræða stöðu vinnumarkaðarins, áhrif gervigreindar og hvers konar samfélagslegra breytinga megi vænta á komandi árum.Boðið verður upp á léttar veitingar. Húsið opnar 8:30.Vinsamlegast skráið mætingu hér að neðan.Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.