...vasi allan daginn - Sýning

...vasi allan daginn - Sýning

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Thu Sep 24 2026 15:00

… vasi allan daginn

„Ánægjulegt að sýna á mínu fyrrverandi heimili"

Guðný M Magnúsdóttir

Fimmtudaginn 24. september opnar Guðný M Magnúsdóttir sýningu sína á vösum í stofugluggum Hannesarholts og mun sýningin standa til 14. október

„Á sýningunni eru fjórir hópar vasa í stofugluggunum sem standa fyrir hringrás dagsins, morgun, hádegi, síðdegi og kvöld þar sem hver gluggi á sér litaskala sem tengist tíma dagsins. Síðustu árin á mínum listræna ferli hef ég einbeitt mér að gerð verka sem tengja myndlist og hönnun í kerjum, skálum og vösum … að vera trú þeirri hugsun minni um að hvert verk, hver hlutur sé áhugaverður einn og sér, veki forvitni og gleði og því að brúa skil skálar, vasa og skúlptúrs, til þess að nota og njóta. Allir vasarnir á sýningunni eru renndir á rennibekk, handmálaðir og hábrenndir.

Sýningin kemur í framhaldi sýningar minnar ... skál á dag og er nokkurskonar lok hringrásar þar sem stór hluti vinnu minnar síðustu ára hefur einkennst af gerð nytjalistar ... og einnig það að ég ásamt fjölskyldu minni bjó á Grundarstíg 10, Hannesarholti, í 17 ár og eignaðist þar mína fyrstu vinnustofu í kjallara hússins." GMM

Guðný hefur haldið 16 einkasýningar hér á landi frá árinu 1980 og 3 í Helsinki en auk þess tekið þátt í fjölmörgum samsýningum frá 1976 hér á landi, á Norðurlöndunum, í Evrópu, Kanada, Bandaríkjunum, Japan og Kóreu.

Sýningaropnun er fimmtudaginn 24.9. kl 15-17 og sýningin er aðgengileg á opnunartíma Hannesarholts,

miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga milli 11.30 og 16.00.