Þór Breiðfjörð og jazztríó-Tónlistarnæring
Music school Garðabær, Kirkjulundur 11, 210 Garðabær Directions
Wed Dec 02 2026 12:15
Þór Breiðfjörð blæs Garðbæingum jólaanda í brjóst með djasskenndri Tónlistarnæringu. Með í för eru hinir frábæru hljóðfæraleikarar Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Jón Rafnsson á kontrabassa og Kjartan Valdemarsson á píanó. Á efnisskránni eru ástsæl jólalög, frumsamin jólalög eftir Þór og eitt glænýtt jólalag eftir þá Kjartan og Þór.
Aðgangur er ókeypis, tónleikarnir eru í boði Menningar í Garðabæ.