Skáldatríó að sunnan

Skáldatríó að sunnan

Skáld Akureyri, Hafnarstræti 80, 600 Akureyri Directions

Sat Dec 05 2026 15:30

Skáldatríó að sunnan

Þrjú skáld að sunnan lesa úr nýútkomnum ljóðabókum sem vakið hafa mikla athygli

Verið velkomin á hrífandi ljóðaviðburð laugardaginn 5. desember kl. 15:30 á Skáld hótel.

Þrjú ljóðskáld munu leggja leið sína norður og lesa upp úr nýútgefnum verkum sínum sem hafa vakið mikla athygli í jólabókaflóði ársins. Meðal þeirra er handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar. Þær sem fram koma eru:

• Védís Eva Guðmundsdóttir les upp úr Brotnum línum,
• Melkorka Ólafsdóttir les upp úr Hverfu,
• Ragnheiður Harpa Leifsdóttir les upp úr Deig (handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2026).

Höfundar bjóða áritaðar bækur á tilboðskjörum á staðnum eftir upplestur. Væri ekki tilvalið að eiga notalega stund og jafnvel klára jólagjafirnar í upphafi aðventunnar?

Þessi viðburður er styrktur af Skáld Akureyri Curio Collection og með framlagi úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.