RIFF 2026 │ Reykjavík Film Festival
Thu Sep 24 2026 19:00
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) fagnar 23. Útgáfu sinni haustið 2026. 🎬
RIFF er ein stærsta og virtasta menningarhátíð Íslands og sameinar innlent og erlent kvikmyndagerðarfólk, listafólk og áhorfendur í ellefu daga af fjölbreyttri kvikmyndadagskrá, skapandi samtali og einstökum upplifunum.
Sýningar og viðburðir fara fram í Háskólabíó, Norræna húsinu og á fjölmörgum öðrum stöðum í Reykjavík.
Á RIFF má sjá allt frá heimsfrumsýningum og margverðlaunuðum kvikmyndum til nýrra og spennandi radda í kvikmyndagerð. Dagskráin býður upp á vandað úrval leikinna mynda, heimildarmynda og stuttmynda, ásamt spurt og svarað, meistaraspjöllum, vinnustofum og óhefðbundnum sýningarstöðum sem færa kvikmyndaupplifunina út fyrir hefðbundið kvikmyndahús.
Dagskrárhápunktar:
Vitranir – keppnisflokkur RIFF með frumraunum og öðrum verkum eftir upprennandi leikstjóra
Fyrir opnu hafi – úrval nýrra og viðurkenndra kvikmynda eftir þekkta leikstjóra víðs vegar að úr heiminum
Gullna eggið – alþjóðleg stuttmyndasamkeppni og lokaverk RIFF Smiðju (e. Talent Lab)
Ísland við sjónarrönd – úrval verka úr íslenskri kvikmyndagerð
Önnur framtíð – kvikmyndir sem varpa ljósi á umhverfis- og samfélagsmál samtímans
UngRIFF – kvikmyndasýningar, vinnustofur og viðburðir fyrir yngri áhorfendur
Sérviðburðir – meðal annars Pulp Fiction, Pride and Prejudice, Twin Peaks og Wild at Heart
🎟️ Hátíðarpassar, afsláttarkort og stakir miðar eru fáanleg á www.riff.is, þar á meðal Super 8, U20–U30 ungmennapassar og Vinapassar.
RIFF er sjálfstæð og óhagnaðardrifin kvikmyndahátíð sem leggur áherslu á framsækna kvikmyndagerð, djarfar frásagnir, nýsköpun og alþjóðleg menningartengsl.
Fylgstu með RIFF 2026:
Instagram: @reykjavikfilmfestival
TikTok: @reykjavikiff
🌐 www.riff.is
//
Reykjavík International Film Festival (RIFF) celebrates its 23rd edition in autumn 2026. 🎬
RIFF is one of Iceland’s largest and most renowned cultural festivals, bringing together local and international filmmakers, artists and audiences for eleven days of an exciting film programme, creative dialogue and unique experiences.
Screenings and events take place at Háskólabíó, Nordic House and a variety of other venues across Reykjavík.
RIFF presents everything from world premieres and award-winning films to fresh and exciting voices in filmmaking. The programme features a carefully curated selection of feature films, documentaries and short films, alongside Q&As, masterclasses, workshops and unconventional screening venues that take the cinematic experience beyond the traditional movie theatre.
Programme Highlights:
New Visions – RIFF’s competition section, featuring debut films and other works by emerging directors
Open Seas – a selection of new and acclaimed films by renowned directors from around the world
The Golden Egg – an international short film competition featuring the final projects from RIFF Smiðja (Talent Lab)
Icelandic Panorama – a selection of works from Icelandic filmmaking
A different tomorrow – films exploring contemporary environmental and social issues
UngRIFF – film screenings, workshops and events for younger audiences
Special Events – including Pulp Fiction, Pride and Prejudice, Twin Peaks and Wild at Heart
🎟️ Festival passes, discount cards and individual tickets are available at www.riff.is, including Super 8, U20–U30 Youth Passes and Friend Passes.
RIFF is an independent, non-profit film festival dedicated to bold storytelling, innovative filmmaking and international cultural exchange.
Follow RIFF 2026:
Instagram: @reykjavikfilmfestival
TikTok: @reykjavikiff
🌐 www.riff.is