MH60 Afmælisdagskrá í Norðurkjallara

MH60 Afmælisdagskrá í Norðurkjallara

Undirheimar |Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Directions

Sat Sep 26 2026 13:30

60 ára afmæli Menntaskólans við Hamrahlíð verður haldið í skólanum laugardaginn 26.september frá morgni til miðnættis. Dagskráin er fjölbreytt og áhersla lögð á að lyfta upp listalífi í skólanum gegnum tíðina með þátttöku fyrrverandi og núverandi nemenda okkur öllum til gleði, gleði.

Ýmsir viðburðir verða víða um skólann. Hér má sjá hvað verður á döfinni í vöggu menningarinnar, Norðurkjallara.

1330-1500 Hamraskáld að fornu og nýju lesa úr verkum sínum.

Skáldin eru: Gerður Kristný, Þórunn Erla Valdimarsdóttir, Fríða Ísberg, Bergur Ebbi, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Brynja Hjálmsdóttir, Nína Sólveig Svavarsdóttir, Þórdís Dröfn, Margrét Lóa, Embla Karen Egilsdóttir og Andrejs Macanovs.

Gestgjafi er Módernistinn Flóki Dagsson.

15-16 Listaskólinn við Hamrahlíð: Pallborðsumræður um hlutverk og áhrif MH á listalíf á Íslandi.

Þátttakendur eru:

Auður Jörundsdóttir, verkefnastjóri sýninga í Listasafni Íslands, Berglind María Tómasdóttir, deildarforseti tónlistar í LHÍ,

Nína Hjálmarsdóttir, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og Páll Valsson, ritstjóri og útgefandi Bjarts.

Umræðum stýrir Erla Björg Gunnarsdóttir, menningarritstjóri RÚV.

16-17 Gettu nú! Sigurlið skólans í Gettu betur frá 2025 tekur áskorun nýstofnaðs liðs fjármálaráðherra, háskólarektors og útvarpsstjóra.

Í Maraþaraborg verður hægt að fá núðlusúpu og vont kaffi.