MH60 Afmælisdagskrá á Miklagarði

MH60 Afmælisdagskrá á Miklagarði

Undirheimar |Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Directions

Sat Sep 26 2026 13:00

60 ára afmæli Menntaskólans við Hamrahlíð verður haldið í skólanum laugardaginn 26.september frá morgni til miðnættis. Dagskráin er fjölbreytt og áhersla lögð á að lyfta upp listalífi í skólanum gegnum tíðina með þátttöku fyrrverandi og núverandi nemenda okkur öllum til gleði, gleði.

Ýmsir viðburðir verða víða um skólann. Hér má sjá hvað verður á döfinni í hátíðasalnum á Miklagarði.

13-1430 Klassíkin okkar!

Tónleikar með sígildri og samtíma tónlist flutt af sígildum og samtíma nemendum. Meðal þeirra má nefna Hallveigu Rúnarsdóttur söngkonu og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara, Elvar Sindra Guðmundsson slagverksleikara, Kvartettinn 4G með Gunnhildi Daðadóttur fiðluleikara í broddi fylkingar, Sól Björnsdóttur píanóleikara, Birnu Kristjánsdóttur flautuleikara og Sellókór MH-inga undir stjórn Hrafnkels Orra Egilssonar með fulltingi Jónu G Kolbrúnardóttur.

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð frumflytur nýjan skólasöng við texta eftir Braga Valdimar Skúlason og úrslit í kórverkakeppni sem efnt var til í tilefni af afmælinu verða tilkynnt.

15-1630 Leiklistin okkar!

Fyrrverandi og núverandi spunameistarar þreyta kappi, leiklesið verður úr Náttúruóperunni sem Andri Snær Magnason samdi fyrir LFMH árið 1998 og söngleikjatónlist fær sinn verðskuldaða sess.

1630-17 Rocky Horror 35 ára. Fyrrum stjórn LFMH afhendir Leikminjasafninu ýmsa muni úr sýningunni frá 1991 til varðveislu, brot úr upptöku af sýningunni úr Iðnó 1991 verða sýnd á breiðtjaldi og Frank N Furter mætir á svæðið. Sjá nánar https://fb.me/2bUEAarsN4AIuN9

*Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir en fyrrverandi og núverandi MH-ingar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Skólayfirvöld áskilja sér rétt til að takmarka aðgang ef þurfa þykir.