MH60 Afmælisdagskrá á Miðgarði, Matgarði og um allt
Undirheimar |Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Directions
Sat Sep 26 2026 10:00
60 ára afmæli Menntaskólans við Hamrahlíð verður haldið í skólanum laugardaginn 26.september frá morgni til miðnættis. Dagskráin er fjölbreytt og áhersla lögð á að lyfta upp listalífi í skólanum gegnum tíðina með þátttöku fyrrverandi og núverandi nemenda okkur öllum til gleði, gleði, gleði.
MATGARÐUR
10-1130 Morgunmatur í áranna rás. Hér gefst fyrrverandi nemendum kostur á að finna borðið sitt og rifja upp góðar stundir. Sómalía verður með veitingar í anda skólaáranna, svo sem uxahalasúpu, harðsoðin egg, rækjusamlokur og fílakaramellur.
12-15 Skoðunarferðir um skólann hefjast á klukkutíma fresti þar sem einn kennari við skólann sem einnig er fyrrverandi nemandi og einn núverandi nemandi bjóða upp á leiðsögn og skiptast á sögum frá námsárum sínum.
12- 17 Kaffihús kórsins og ýmsar uppákomur.
UM ALLAN SKÓLANN
11-13 Skákþrautir og opið tafl á Miðgarði.
12-17 Nemendur í listdansi sýna dans víða um skólann í samstarfi við listdansskólana sem þau stunda nám í.
12-17 Bókasafnið býður á sögusýningu þar sem má glugga í gömul Beneventum, Skaramýss og leikskrár og ýmislegt fleira úr sögu skólans verður til sýnis.
12-17 Gjörningalist LFMH í Undirheimum.
12-17 Myndlistarsýning þar sem sýningarstjórar eru fyrrum nemendur MH sem nú gera garðinn frægan í LHÍ.
12-17 Söfnun Munnlegra Heimilda í hlaðvarpssófa á bókasafninu þar sem sögukennarar taka gesti tali og safna misritskoðuðum minningum um skólalífið í MH gegnum tíðina.
12-17 Vídeólistaverk eftir listafólk úr hópi fyrrum nemenda MH, þar má nefna Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Hönnu Huldu Hafþórsdóttur kvikmyndagerðarkonur og Emmu Heiðarsdóttur myndlistarkonu.
12-17 MH í fréttum - hreyfimyndasýning úr sögu skólans
12-17 Refsarinn: Helstu afrek Myndbandabúa til sýnis.
Prjónagleði: Ormurinn langi bíður þess áfjáður að stækka með liðsinni afmælisgesta!
Mikligarður sjá https://fb.me/e/9z7RuH7az
Norðurkjallari sjá https://fb.me/e/6t99nG9xq
Stórtónleikar sjá https://fb.me/e/jUa7eRJ1m