Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra

Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra

Hljómahöll | Stapi, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Directions

Fri Nov 27 2026 20:00

Kæru vinir. Í haust verða fjögur ár liðin frá því að ég, Már, flaug úr hreiðrinu yfir hafið á

vit ævintýranna. Nú er ég á lokaárinu við hinn frábæra RNCM háskóla í Manchester. Af því

tilefni tel ég í þriðju og síðustu tónleikana mína á Íslandi ásamt the Royal Northern College

of Music session Orchestra.

Á tónleikunum verður farið um víðan völl, auk tónlistar eftir mig verða flutt vel valin lög

sem hafa mótað mig í gegnum tíðina í nýjum og glæsilegum sinfóníuútsetningum.

RNCM Session Orchestra skipa þrjátíu ungir stórkostlegir hljóðfæraleikarar. Þessir

tónlistarmenn eru upprennandi stjörnur ensku sinfóníuelítunnar og koma reglulega fram með

hljómsveitum á borð við BBC Philharmonic, The Hallé og Opera North í Manchester.

Það hefur reynst mér ómetanlegur lærdómur og mikill heiður að hafa starfað með þessu

hæfileikaríka tónlistarfólki undanfarin ár. Ég er fullur tilhlökkunar að bjóða hópnum að

heimsækja okkar fallega heimabæ, Reykjanesbæ.

Verkefni af þessari stærð er gríðarlega umfangsmikið og stuðningur heimamanna og góðra

styrktaraðila hefur verið ómetanlegur í þessari vegferð.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Hljómahöll og eiga með ykkur ógleymanlega

kvöldstund.

Flytjendur: Már Gunnarsson, Ísold og Iva

Hljómsveitarstjóri: prófessor Andy Stott

Hljóðfæraleikarar:

Fyrsta flauta: Jessica Pun

Önnur flauta/Piccolo: Adele Bracegirdle

Óbó: Elizabeth Russell

Alto Saxafónn: Matthew Hodson

Tenór/Sópran Saxafónn: Zack Smith

Baritón Saxafónn: Samuel LightwingFranskt horn: Thomas Hutchison, Joseph Clarkson

Trompet: Robbie Richardson, Alex Browne

Básúna: Oliver Bartlett

Píanó: Már Gunnarsson

Hljómborð: Aaron Le Maistre

Gítar: Guy Bandell

Bassi: Max Cooper

Slagverk: Sam Garbutt, Daniel Malone

Fyrsta fiðla: Lian Yip, Fionnghuala Drumgoole, Elanor Leydecker, Coraleigh Edwards

Önnur fiðla: Elana Gewirtz, Eleanor Prout, Ellie Shek, Emily Ampt

Víólur: Éadaoin Drumgoole, Nadia Eskandari

Selló: Lucy Pye, Stefan Rogers

Bakraddir: Matt Vining, Owen Edwards, Finn Flood

Samstarfsaðilar: Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Courtyard by Marriott Reykjavík

Keflavík Airport, Sporthúsið Reykjanesbæ, K. Steinarsson, Bus4u Iceland, Rétturinn,

Hamborgarabúlla Tómasar, Kökulist Bakarí og Reykjanesbær.