Leirsmiðja með Antoníu Berg – Neskaupstað

Leirsmiðja með Antoníu Berg – Neskaupstað

Sun Oct 04 2026 13:00

Verið hjartanlega velkomin í skapandi leirsmiðju þar sem við sækjum innblástur í þjóðsögur,

landslag og þjóðsögur Austfjarða.

Við vinnum með íslenskan leir sem safnað hefur verið á Austurlandi og blöndum honum við

danskan steinleir. Úr honum búum við til vætti og verur, innblásnar af sögum frá svæðinu og

eigin hugmyndaflugi.

Í smiðjunni les ég nokkrar stuttar sögur úr bókinni Dvergasteinn og saman könnum við

sérstaka eiginleika íslenska leirsins með leik, sköpun og frásögnum. Einnig verður stutt hlé

þar sem boðið verður upp á te eða heitt súkkulaði og ferska ávexti.

Verkin verða ekki brennd að smiðjunni lokinni en börnin velkomin að taka verkin heim.

Lengd: 2 klukkustundir

Dagskrá:

- Móttaka og kynning

- Kynning á austfirskum leir og öðrum efnivið

- Þjóðsaga úr Dvergasteini

- Leirkönnun og mótun ævintýravera

- Hlé með tei/heitu súkkulaði og ávöxtum

- Haldið áfram að skapa og krakkarnir segja frá því sem þau sköpuðu