Jólagrautur á Vagninum
Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions
Fri Nov 20 2026 20:00
Jæja gott fólk,
Það stendur mikið til á Vagninum á Flateyri helgina 20.-21. nóvember. Vinir og velunnarar hans ætla að opna hann upp á gátt og bjóða upp á sannkallaða tónlistarveislu í aðdraganda jóla.
Hrært verður í girnilegan Jólagraut þar sem öllu ægir saman. Baggalútur, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson & Memfismafían, Bogomil Font & Greiningardeildin og Árný Margrét mæta á svæðið og telja í ýmiskonar hátíðar- og aðventuhittara í bland við hugljúf
jólalög og sígilda smelli.
Einstakt tækifæri til að koma sér í jólagírinn með góðum fyrirvara.
Ef þið viljið bóka ykkur gistingu í nágrenninu, þá er laus hús hjá Vagninn Cabins.
https://www.booking.com/searchresults.is.html?ss=Flateyri&ssne=Flateyri&ssne_untouched=Flateyri&highlighted_hotels=16665727&efdco=1&label=gog235jc-10CAsocEIOdmFnbmlubi1jYWJpbnNIM1gDaHCIAQGYATO4AQfIAQzYAQPoAQH4AQGIAgGoAgG4AtmjodcGwAIB0gIkZGU2N2MzMjMtY2FmZC00MDFmLTg4NjYtZjk4YjdlOGFjYWRj2AIB4AIB&sid=778290a2c638f380704513616f877d89&aid=356980&lang=is&sb=1&src_elem=sb&src=searchresults&dest_id=-2644096&dest_type=city&checkin=2026-11-20&checkout=2026-11-22&group_adults=2&no_rooms=2&group_children=2&age=9&age=13
Við hvetjum fólk til að tryggja sér miða sem fyrst.
Húsið opnar kl 19:00 báða dagana fyrir fólk með miða.
Drekkutíminn verður samt á sínum stað úti á palli kl. 17:00 báða dagana.
Hlekkur á forsölu:
https://checkout.tix.is/is/specialoffer/k6rystl6jv3xq