HERRAKVÖLD HK 2026
Fri Oct 16 2026 19:00
Glæsilegasta herrakvöld allra tíma!
Kvöldið sem enginn vill missa af!
Undirbúningurinn er í blússandi gír og það stefnir í ógleymanlegt kvöld þar sem frábær matur, skemmtun og stemning verða í algjöru aðalhlutverki.
Bolli Már heldur þétt utan um kvöldið sem veislustjóri og Björn Bragi stígur á svið sem ræðumaður kvöldsins – þannig að það er óhætt að lofa bæði húmor og góðri skemmtun.
Lúðrasveit verkalýðsins sér til þess að kvöldið hefjist með krafti og glæsilegur hátíðarkvöldverður frá Sælkerabúðinni verður borinn fram fyrir gesti.
Kaldir drykkir frá CCEP, verða við höndina og að sjálfsögðu verður nóg um að vera allt kvöldið.
Stórglæsilegt uppboð og happdrætti verða á sínum stað með spennandi vinningum – og þegar líður á kvöldið tekur DJ Jón Gestur við og heldur uppi stemningunni.
Matur • Drykkir • Uppboð • Happdrætti • Skemmtun • Tónlist