Haustganga á Snæfell
Laugarfell, 701 Fljótsdalshreppur, Ísland, Laugarfell, 701 Egilsstaðir Directions
Sun Sep 20 2026 07:00
Haustganga klúbbsins verður á Snæfell og hvetjum við öll sem eru í göngustuði að koma með.
Við leggjum af stað frá Herðubreið þar sem við sameinumst í bíla kl. 7 að morgni sunnudags. Það væri gott að þau sem ætla að keyra láti vita ef það eru laus sæti upp á að það verði nægir bílar. Afleggjarinn að Snæfelli er grófur fjallaslóði þannig að það er betra að vera á bílum sem hafa þokkalega veghæð.
Veðurspáin er flott og skýjahulan hefur verið að opnast þannig að við teljum að það stefni í flottan göngudag í mildu og fallegu veðri.
Skúli Júl leiðsögumaður leiðir gönguna en það þekkja Snæfellið fáir betur en hann.
Praktískar upplýsingar
Brottför frá Seyðisfirði kl. 7.
Aksturinn að Snæfelli er u.þ.b. 2 1/2 tími. Við hefjum göngu kl. 10.
Hækkunin er rétt um 1.100 metrar, Snæfell er 1833 m. og við komum til með að ganga klassísku leiðina.
Áætlaður göngutími er 7-8 tímar.
Búnaður
Við þurfum að vera vel búin þar sem það gæti orðið svalt á toppnum. Eins þurfa allir þurfa að hafa meðferðis góða brodda, góðir esjubroddar eða keðjubroddar duga til. (Við erum að vonast eftir upplýsingum um aðstæður á toppnum innan tíðar:).
Við skulum mæta vel búin og vel nestuð í góða skapinu.
Athugið að ef veðurspá breytist höfum við laugardaginn 26 sept. vara!