Glaðari þú og zumba á Ylströndinni #Beactive
Ylströndin Nauthólsvík, , Nauthólsvík Directions
Sat Sep 26 2026 14:00
Vegna Íþróttaviku Evrópu verður frítt á Ylströndina frá kl. 14:00 þann 26. september.
Við hvetjum gesti til að taka þátt í glaðari þú og zumba sem verður í boði á ströndinni!
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur undanfarin ár hlotið styrk í gegnum Erasmus+ styrkjakerfi Evrópusambandsins (European Commission) vegna Íþróttaviku Evrópu.
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.