Furðusögur: Fantasíur og furðulönd

Furðusögur: Fantasíur og furðulönd

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Thu Feb 25 2027 19:00

Hvernig skrifar maður heilan heim? Hvernig vekur maður óhug hjá lesendum? Hvað telst vera vísindaskáldskapur í heimi þar sem tækninni fleygir ógnarhratt fram?

Á þessu námskeiði könnum við helstu einkenni furðusagna ásamt því að æfa okkur í þróun og ritun innan ólíkra greina, svo sem fantasíu, vísindaskáldskapar og hryllings. Skoðað verður hvernig þessar greinar birtast í bókmenntum og öðrum listgreinum og hvað einkennir þær. Við köfum ofan í einkenni greinanna, prófum okkur áfram við heimsmótun (e. world building) og vinnum með leiðir til að skapa furðusagnahugtök og þróa þau áfram í frásögn.

Námskeiðið hentar áhugafólki um furðubókmenntir sem hefur einhverja reynslu af skrifum, en vill dýpka þekkingu sína og færni. Þátttakendur mega gjarnan koma með verk eða hugmynd í vinnslu og nýta námskeiðið til að þróa hana áfram, en það er ekki nauðsynlegt.

Skrifað verður í tímum, svo þátttakendur þurfa að hafa með sér annað hvort fartölvu eða stílabók. Notkun stórra mállíkana og annarra gervigreindarverkfæra við ritun og hugmyndavinnu er ekki heimil á námskeiðinu, enda byggist námið á eigin sköpun, tilraunum og vinnu þátttakenda.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Einkenni furðusagna í bókmenntum og öðrum listgreinum.
  • Mótun og þróun söguheima í fantasíum og vísindaskáldskap.
  • Hvernig ótti, óhugnaður og drungi eru byggð upp í hryllingi.

Ávinningur þinn:

  • Þú eykur skilning þinn á helstu einkennum furðusagna.
  • Þú færð þjálfun í að ræða og greina verk innan mismunandi greina furðusagna.
  • Þú færð þjálfun í því að skrifa um ímyndaða heima.
  • Þú færð verkfæri sem nýtast við að þróa og stækka hugmyndir og hugtök.