Friðardagar Vonarbrúar á Langanesi

Friðardagar Vonarbrúar á Langanesi

Ytra Lón Farm & Retreat, Farfuglaheimilið Ytra Lóni, 681 Þórshöfn Directions

Thu Sep 24 2026 15:00

Má bjóða ykkur að taka þátt í endurnærandi, eflandi og skapandi friðardögum í kyrrð og ró á Langanesi?

Þær Mirjam Blekkenhorst og Kristín S. Bjarnadóttir hjá almannaheillafélaginu Vonarbrú, sem styður barnafjölskyldur á Gasa bæði fjárhagslega og félagslega, standa fyrir friðardögum í kyrrlátu umhverfi að Ytra Lóni, þar sem Mirjam og fjölskylda reka gistiheimili.

Tilvalið fyrir þau sem hafa beitt sér og verið að styðja fjölskyldur á Gasa. Öll áhugasöm um slíkan stuðning einnig velkomin.

Samvera í bland við hvíld og hvert og eitt getur tekið þátt í dagskrá eða dregið sig í hlé að vild, innan dyra sem utan.

Vettvangsferð, hugmyndasmiðja og hugarflæði, hópheilun, jarðarheilun, klukkustundar langur netaktivsimi fyrir börnin á Gasa og nærandi samtöl, úrvinnsla og hvíld eftir þörfum.

Gisting í notalegum tveggja manna herbergjum (nema um annað verði samið), uppbúin rúm og hollur og góður matur.

Sérstakt tilboð þeirra Ytra Lóns hjóna fyrir friðardaga:

54.000 kr.

Innifalið:

Þrjár nætur í gistingu og morgunverður, hádegisverður og kvöldverður, frá fimmtudagskvöldi til og með morgunverðar á sunnudagsmorgni.

Nánari upplýsingar veitir @Mirjam Blekkenhorst og hún sér einnig um bókanir netfang: mirjam@ytralon.is

Við hvetjum öll áhugasöm að taka helgina frá,

frá fim. 24. september - sun. 27. september og bóka sig í hvíld og endurnærandi uppbyggingu í sveitinni hjá Mirjam.

Norlandair er með tilboðsverð á flugi milli Akureyrar og Þórshafnar, flugið fæst á kr. 8.795 hvora leið fyrir gesti Friðardaganna.