Fjárfestingar og íslenskt hagkerfi
Betri Stofan, Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður Directions
Wed Sep 23 2026 17:30
Á viðburðinum fara sérfræðingar Arion banka yfir grunnatriði í fjárfestingum og varpa ljósi á núverandi stöðu á mörkuðum. Þá verður rýnt hvernig þróun í hagkerfinu getur haft áhrif á fjárfestingar á komandi misserum.
Dagskrá:
- Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, spáir í stöðuna í hagkerfinu okkar, skoðar hvað er fram undan á árinu og tínir til lykilstærðir sem hafa áhrif á þá þróun.
- Snædís Ögn Flosadóttir fer yfir grunnatriði og lykilhugtök í fjárfestingum og útskýrir hvernig byrja má að fjárfesta í sjóðum, hlutabréfum og skuldabréfum.
Viðburðurinn stendur yfir í um klukkustund. Undir lokin gefst þátttakendum kostur á að bera upp spurningar.
Við hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.
Skráning: https://www.arionbanki.is/einstaklingar/fraedsla-og-radgjoef/konur-fjarfestum