Dýpstu myrkur - Útgáfuhóf!

Dýpstu myrkur - Útgáfuhóf!

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions

Tue Sep 22 2026 17:00

Í tilefni bókarinnar Dýpstu myrkur eftir Hjorth & Thorsson verður blásið til útgáfuhófs þriðjudaginn 22. september í Bókabúð Forlagsins við Fiskislóð.

Að baki tvíeykinu Hjorth & Thorsson standa sænski kvikmyndaframleiðandinn og handritshöfundurinn Michael Hjorth, sem áður hefur skrifað feikivinsælar glæpasögur í félagi við Hans Rosenfeldt, og íslenski leikarinn, leikstjórinn og handritshöfundurinn Bjarni Haukur Þórsson, sem sló fyrst í gegn í einleiknum Hellisbúanum en hefur undanfarin ár búið og starfað í Svíþjóð.

Höfundarnir verða á svæðinu til að lesa upp, árita bækur og hitta lesendur. Bókin verður á sérstöku tilboði og léttar veitingar í boði.

Verið öll velkomin!