Að sjá lífið fyrir - Fjárfestingar, lífeyrissjóðir og tryggingar

Að sjá lífið fyrir - Fjárfestingar, lífeyrissjóðir og tryggingar

Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavík Directions

Wed Oct 14 2026 17:00

Að þessu sinni ætlum við að skoða hvernig þú getur látið lífeyrissjóðinn þinn og fjárfestingarnar vinna saman, svo þú og þínir getið haft það sem best í framtíðinni. Einnig ætlum við að skoða hvar tryggingar koma inn í myndina.

Dagskrá:

- Snædís Ögn Flosadóttir kafar dýpra í fjárfestingar og skoðar hvar lífeyrissjóðurinn stígur inn í og hvers vegna ákvarðanirnar sem við tökum reglulega yfir ævina skipta heilmiklu máli.

- Þórdís Lind Leiva fer yfir mikilvægi þess að vera rétt tryggð og hvernig tryggingar geta stutt við fjárhagslegt öryggi þegar óvæntar aðstæður koma upp.

Fyrirlesturinn er um klukkustund, spjall og spurningar í kjölfarið.

Við hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Skráning: https://www.arionbanki.is/einstaklingar/fraedsla-og-radgjoef/konur-fjarfestum

Performers